Ekki hægt að taka inn nýnema
Háskóli Íslands mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Háskólinn lengdi umsóknarfrest og bauð fólki að sækja um nám í fleiri deildum en áður við áramót og segir Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor að ekki hafi átt að afgreiða umsóknirnar fyrr en ljóst væri um fjárveitingar til skólans. Þegar umsóknarfrestinum lauk á mánudaginn höfðu rúmlega 1.600 sótt um. Það eru um þrettán prósent af heildarnemendafjölda skólans.
Kristín segir að skólinn verði að skera niður eins og aðrir í þessu árferði. „En niðurskurðurinn er talsvert meiri en við áttum von á og hlutfallslega meiri en hjá öðrum háskólum,“ segir hún. „Þetta er gríðarlega sársaukafullt fyrir skólann. Við munum gera það sem við getum því við viljum mæta okkar samfélagslegu ábyrgð.“ Kristín er í viðræðum til þess að fá bættan þann viðbótarkostnað sem hlýst af inntöku nýrra nemenda. „Við viljum ekki gefa upp hversu margir komast inn fyrr en við vitum endanlega hver fjárveiting okkar verður.“
Kristín vísar því á bug að þetta sé þrýstiaðgerð. „En það segir sig sjálft að við getum ekki bæði tekið við kröfu um milljarð í niðurskurð og tekið við 1.600 nýjum nemendum í skólann. Við þurfum að hugsa um gæði námsins því engum er greiði gerður með því að minnka kröfurnar. Að lokum værum við að gera samfélaginu grikk með því.“ Dæmi eru um að skólinn hafi þegar sent greiðsluseðla til þeirra sem sóttu um nám. Þeir hafa verið ógiltir. Kristín segir að háskólaráð taki afstöðu til inntöku á fundi á morgun, mánudag, og í kjölfarið verði tilkynningar sendar út til umsækjenda. Biðlað var til allra háskóla að gera það sem hægt væri til að taka við nemendum við áramót. „Í fyrra voru umsóknir um tvö hundruð,“ segir Kristín. Eftirspurnin hefur margfaldast milli ára enda hart í ári.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Þórðarson Ríkisstjórnin byrjuð að narta í útsæðið -
S i g u r ð u r Sigurðarson Farsælla að vera í námi en á atvinnuleysisbótum -
Ólöf de Bont Kemst ekki inn -
Bjarni Valur Er þetta nokkuð nýtt? -
Axel Eyfjörð Friðriksson Hvað með Keldnaholt? -
Hildur Sif Thorarensen Hvetja til náms og skera svo niður? -
Rafn Haraldur Sigurðsson Eilífðarstúdentinn. -
Berglind Vala Jónsdóttir Enn eitt snilldarframtak hjá ríkisstjórninni. -
Gunnar Björn Björnsson Hugsum út fyrir rammann. -
Sigurður Bogi Sævarsson Háskólinn, Grillið og Kleppur -
Gísli Foster Hjartarson Gott hjá Menntamálaráðherra! -
Guðjón Sigþór Jensson Siðblinda -
Róbert Björnsson Svívirðileg forgangsröðun -
K Zeta Why don´t they eat cookies?
Innlent »
- SUF vill draga ESB-umsóknina til baka
- Vilja efla siðferði í stjórnmálum
- Enginn með einkarétt á Samstöðu
-
Yrði öðruvísi biskup
- Handteknir fyrir að keyra á mann
- Hefur hátt í fangaklefa
-
Martröð í matarboði
- Leikstjórinn kom inn sem ljón
- Fjöruverðlaun eftir viku
- Enn skelfur við Grímsey
- Opið á skíðasvæðum
- Fíkniefnasali handtekinn
- Braut rúðu í lögreglubíl
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðarþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 31. október 2008, Innlent Alger óvissa um fjárveitingar til HÍ
- Laugardagur, 13. desember 2008, Innlent Um 2.000 vilja í skóla
- Þriðjudagur, 6. janúar 2009, Innlent Sem flestir komist í Tækniskólann
- Laugardagur, 17. janúar 2009, Innlent Brautskráning frá HR
- Miðvikudagur, 17. desember 2008, Innlent Samstarfssamningur við Peking háskóla undirritaður
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði öðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu




































