Tætir sundur skuldir heimila

Vegfarendum í Austurstæti var boðið upp á margvíslega þjónustu fyrir utan Landsbankann í morgun. Undirtektir voru frekar dræmar enda óvanaleg þjónusta, að minnsta kosti fyrir fólkið á götunni. Stórum gagnaeyðara hafði verið komið fyrir á gangstéttinni þar sem fólk gat látið eyða skuldum heimilisins, þá var hægt að fá óreiðuþvott og hvítflibbaþvott. Síðan gat fólk fengið aðstoð við leynireikninga og undanskot til útlanda eða verslað við stórþvottastöðina Birnu í kjallara bankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert