Bifhjólaslys í Kópavogi

Ökumaður bifhjóls var fluttur á slysadeild eftir að bíll ók í veg fyrir hjól hans á gatnamótum Kársnesbrautar og Urðarbrautar í Kópavogi í kvöld. Maðurinn kastaðist yfir bílinn en talið er að meiðsli hans hafi ekki verið alvarleg. Bifhjólamaðurinn var ekki í hlífðarfatnaði að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert