Aldrei fór ég suður um páskana

Búið er að tryggja fjármagn fyrir tónlistarhátíðina.
Búið er að tryggja fjármagn fyrir tónlistarhátíðina. Ómar Óskarsson

Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin um páskana í ár að sögn Bæjarins Besta og munu Ísafjarðarbær og Menningarráð Vestfjarða styrkja hátíðina að þessu sinni.

„Við gerum okkur grein fyrir því að það er þröngt í búi og það fyrsta sem menn skera niður er dekur við einhverja tónleika út á landi,“ hefur BB eftir Guðmundi M. Kristjánssyni, einum aðstandenda tónlistarhátíðarinnar, sem segir aðkomu Ísafjarðarbæjar og Menningarráðsins tryggja grunn hátíðarinnar.  

Framkvæmdanefnd Aldrei fór ég suður kom saman milli jóla og nýárs til að fara yfir stöðu mála. Spurður hvort nefndin hafi annað húsnæði í huga í ár en á Ásgeirsbakka, þar sem hátíðin hefur verið haldin tvö síðustu ár, segir Guðmundur að ekkert hafi verið ákveðið í þeim efnum.

„Okkur hefur líkað mjög vel að vera niður á Ásgeirsbakka en það hefur ekkert verið þreifað á því hvort það standi til boða í ár. Við munum væntanlega leita til þeirra fyrst.“ Hann segir hátíðina hafa staðið undir sér á síðasta ári. „Við erum ekki að horfa fram á að þurfa borga skuldir síðasta árs og er markmið okkar að koma alltaf út á núlli. Við erum ekki í þessu til að græða peninga,“ segir Guðmundur.

Ekki er búið að ráða rokkstjóra fyrir hátíðina en vilji er innan nefndarinnar að endurráða Hálfdán Bjarka Hálfdánarson, rokkstjóra síðustu tveggja hátíða. „Hann er hins vegar í fullu starfi hjá Ísafjarðarbæ sem upplýsingafulltrúi og við munum kannski leita til sveitarfélagsins um að fá að nota hann sem slíkan í gegnum bæinn. Við vitum hins vegar ekki hvernig það verður,“ segir Guðmundur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert