Smyglaði fíkniefnum inn í fangelsi

Upp komst um fanga á Litla Hrauni, sem grunaðir eru um aðild að smygli á fíkniefnum inn í fangelsið. Að sögn lögreglu var staðið  þannig að smyglinu,  að einhver kom fíkniefnum fyrir utan á bifreið sem á oft leið inn á svæðið. Fangarnir gengu síðan að bifreiðinni og tóku fíkniefninn.

Í þessu tilviki var einn fanginn staðinn að verki við að taka efnið af bifreiðinni og stinga því inná sig.

Þá komst í síðustu viku upp um landabruggara á Stokkseyri.  Gerð var húsleit á heimili mannsins og fundust um 25 lítrar af landa  og um 200 lítrar af gambra auk framleiðslubúnaðar.  Málið er í rannsókn og  verður sent til ákæruvalds að henni lokinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert