5.000 börn lögð í einelti

Sviðsett mynd af einelti

Sviðsett mynd af einelti mbl.is

Morgunblaðið Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is
Líta þarf hvert einasta eineltismál alvarlegum augum og vakni grunur um einelti ber strax að setja málið í ákveðinn farveg að mati Þorláks H. Helgasonar, framkvæmdastjóra Olweus-áætlunarinnar á Íslandi. „Þetta eru erfið mál,“ segir hann. „Á Íslandi eru 5.000 börn sem eru lögð í einelti og þá tölu má margfalda með öllum foreldrunum og skólunum sem líða fyrir eineltið.“

Þorlákur segir alltaf eitthvað um að þolendur eða aðstandendur hafi beint sambandi við sig, en Þorlákur kom að máli Hólmfríðar Guðlaugar Einarsdóttir sem rætt var við í blaðinu í gær. Hólmfríður bloggar nú um níu ára einelti sem hún varð fyrir í Varmárskóla og lauk ekki fyrr en hún skipti um skóla. Saga hennar vakti mikla athygli og fékk viðtal hennar um 30.000 flettingar á mbl.is í gær, auk þess sem rúmlega 10.000 innlit voru á bloggsíðu Hólmfríðar.

Þorlákur telur umfjöllun um einelti eiga illa heima í bloggheimum, ábyrgðin liggi fyrst og síðast hjá hinum fullorðnu, starfsfólki skólanna sem og foreldrum. Einelti til langs tíma sé alltaf alvarlegt mál. „Þetta lamar allt. Það þarf að líta hvert einasta mál alvarlegum augum. Skólayfirvöld mega ekki fara í vörn ef barn eða foreldri kemur og talar við þau. Aðalatriðið er að barninu líður illa.“ Þess í stað eigi að fara vandlega yfir gátlista Olweus-áætlunarinnar til að kanna hvort eineltið fái staðfest.

Í þeim skólum sem taka þátt í Olweus-verkefninu hér á landi er einelti í 4.-10. bekk nú að meðaltali 8%. Breiddin er þó gífurleg og mælist eineltið sumstaðar 2.-4% á meðan annars staðar fer það upp í 11-12%. Þorlákur segir niðurstöður fyrir síðasta ár þó benda til þess að einelti sé að aukast í sumum skólum. „Í þeim skólum í Reykjavík sem byrjuðu með áætlunina þegar við fórum af stað 2002 mældist einelti hjá strákum í 10. bekk hins vegar ekki nema 1,8% árið 2007 og það held ég að sé heimsmet,“ segir Þorlákur.

Munu yfirfara viðbrögð við eineltismálum

Í yfirlýsingu sem skólayfirvöld í Mosfellsbæ og Varmárskóli hafa sent frá sér kemur fram að Varmárskóli hafi allt frá 2004 verið þátttakandi í Olweus-verkefninu og hafi að leiðarljósi að einelti sé ekki liðið undir neinum kringumstæðum. Skólinn tjái sig hins vegar ekki um mál einstakra nemenda þótt það beri að harma líði börnum svo illa að þau beri tjón af og við því verði skólar og samfélag að bregðast.

„Varmárskóli og skólayfirvöld í Mosfellsbæ munu hér eftir sem hingað til leggja sitt af mörkum til að styðja við nemendur í Mosfellsbæ vegna þeirra erfiðleika sem þeir glíma við hverju sinni. Enginn er þó óskeikull og mikilvægt fyrir gott skólastarf að læra af reynslu einstaklinga og stofnunar. Varmárskóli mun því yfirfara markmið og verkferla í viðbrögðum við eineltismálum að gefnu tilefni,“ segir í yfirlýsingunni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Seldu notuð kælikerfi
Áttu ónotuð kælikerfi sem þú vilt losna við? Viltu kaupa ódýr kælikerfi? Önnumst...
Söluvagn / Pulsuvagn til sölu.
Hef til sölu nýlegan söluvagn tilbúinn í rekstur. Fullbúinn til sölu á pulsum og...
SAUMAVÉLAR
Saumavélar- saumavélaviðgerðir Nýjar og notaðar...
Lítill ljósabekkur
Til sölu þessi krúttlegi ljósabekkur Orginal philips uva. 8 perur. Upplýsingar í...
 
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...
Útboð ljósleiðaravæðing

Skeiða- og Gnúpverjahreppur Útboð S...