Lögreglan lýsir eftir vitnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir fólki sem varð vitni að umferðaróhappi á Austurbergi, framan við Hólabrekkuskóla, í Reykjavík þriðjudaginn 13. janúar sl. um kl. 08:05. Þar var grárri fólksbifreið ekið á dreng sem var að fara yfir gangbraut. Ökumaðurinn ók á brott, en meiðsli drengsins eru minniháttar.
 
Þeir vegfarendur sem kunna að hafa orðið vitni að óhappinu er beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert