Yfir hálf milljón útlendinga til Íslands

Ferðamenn við Dettifoss
Ferðamenn við Dettifoss mbl.is/RAX

Alls fóru 502 þúsund erlendir gestir frá landinu á árinu 2008 en 2007 voru þeir 485 þúsund talsins.  Aukningin er um 17 þúsund eða 3,5%. Langflestir eða um 94,1% fóru um Leifsstöð, 2,9% um  Reykjavíkur-, Akureyrar eða Egilsstaðaflugvöll og 2,9% með Norrænu um Seyðisfjörð.

Þetta er í fyrsta sinn sem erlendir gestir fara yfir hálfa milljón á einu ári. Farþegar skemmtiferðaskipa eru ekki inn í þessum tölum og koma því til viðbótar, samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu.

Samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Leifsstöð fóru 472.500 erlendir gestir frá landinu um flugvöllinn á árinu 2008, sem er aukning um 13.500 gesti eða 2,9% frá árinu áður. Allar brottfarir erlendra gesta um Leifsstöð eru inni í þessum talningum, þ.m.t.brottfarir erlends vinnuafl.

Færri Íslendingar fara utan

Nokkur fjölgun var frá Mið-Evrópu á árinu 2008 í samanburði við fyrra ár, Hollendingum fjölgaði um 30,4%, Frökkum um 15% og Þjóðverjum um 11%.  Fjöldi Norðurlandabúa stóð í stað. Spánverjum fjölgaði um 10% og eru nú í fyrsta sinn fjölmennari en Ítalir sem fækkaði um tæp 4%. Bretum fækkaði um tæp 5% og Bandaríkjamönnum um 23%. Kanadabúum fjölgaði hins vegar um 68% á árinu.  Brottförum annarra landa Evrópu og fjarmarkaða fjölgaði um 11%.

Brottförum Íslendinga milli ára (2007-2008) fækkaði um 10%, mest munar um fækkun síðustu þrjá mánuði, ársins, október til desember, en þá fækkaði brottförum um helming, fóru úr 113 þúsundum í 61 þúsund.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert