Jóhönnustjórnin tekur við undir kvöld
Jóhanna Sigurðardóttir, verðandi forsætisráðherra. Ríkisstjórn undir hennar forsæti tekur við á ríkisráðsfundi á Bessastöðum undir kvöld. Ómar Óskarsson
Stefnt er að því að ný ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur verði kynnt á fimmta tímanum í dag. Ríkisráðsfundir verða að líkindum haldnir í framhaldi af því.
Miðstjórnarfundur Framsóknarflokks hefur verið boðaður í dag klukkan hálftvö þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, kynnir framgang og niðurstöður viðræðna um að flokkurinn verji minnihlutastjórn Samfylkingar og VG falli fram að kosningum.
Þingflokkar VG og Samfylkingar hafa verið boðaðir til funda eftir hádegið. Þingflokkur VG þingar klukkan tvö en Samfylking hálftíma síðar.
Að loknum þingflokksfundi halda þingmenn Samfylkingar til fundar við flokksstjórn í Nasa en það er sú stofnun flokksins sem endanlega blessar stjórnarsamstarfið. Í flokksstjórn eiga sæti, auk þingmanna, fulltrúar framkvæmdastjórnar, þrjátíu og einn fulltrúi kjörnir af kjördæmisráðum Samfylkingarinnar, þrjátíu fulltrúar sem kjörnir eru á landsfundi, sveitarstjórnarfulltrúar Samfylkingarinnar, formenn kjördæmis- og fulltrúaráða, formenn aðildarfélaga Samfylkingarinnar og stjórn verkalýðsmálaráðs. Í flokksstjórn eiga sæti hátt á annað hundrað manns.
Ný ríkisstjórn, verkefnaskrá hennar og ráðherraskipan verður svo kynnt á fimmta tímanum í dag.
Fráfarandi ríkisstjórn Geirs H. Haarde kemur til síns síðasta ríkisráðsfundar á Bessastöðum um eða upp úr klukkan fimm. Að honum loknum verður haldinn ríkisráðsfundur viðtakandi ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur þar sem formleg valdaskipti fara fram.
Bloggað um fréttina
-
Frikkinn Kyn-leg stjórn -
Þráinn Jökull Elísson Ný ríkisstjórn. -
Jenný Anna Baldursdóttir Ekta Silfur -
Haraldur Haraldsson Jóhönnustjórnin tekur við undir kvöld !!!!! -
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 31. janúar 2009, Innlent Ný stjórn hefur 83 daga til stefnu
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Ný ríkisstjórn á morgun
- Sunnudagur, 10. maí 2009, Innlent Ríkisráðsfundir boðaðir
- Sunnudagur, 1. febrúar 2009, Innlent Tíu ráðherrar í nýrri stjórn
- Fimmtudagur, 29. janúar 2009, Innlent Næstu skref í stjórnarmyndun
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































