Trúi ekki að Samfylkingin láti stranda á ESB

Frambjóðendur á borgarafundinum í Nasa í kvöld. stækka

Frambjóðendur á borgarafundinum í Nasa í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Svandís Svavarsdóttir, frambjóðandi Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, sagði á borgarafundi sem nú stendur yfir í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins, að flokkurinn hafni aðild að Evrópusambandinu, eins og marg oft hefur komið fram. „Ég trúi því ekki að Samfylkingin láti stranda á þessu máli,“ sagði Svandís spurð um möguleika á áframhaldandi samstarfi flokkanna í ríkisstjórn að loknum kosningum.

Svandís lagði áherslu á að Vinstri grænir teldu engan asa þurfa í þessu máli og nálgast ætti spurninguna um ESB af yfirvegun. Hún sagðist viss um að hægt yrði að leysa það með hvaða hætti ákvörðun yrði tekin, og hvort sem um yrði að ræða einfalda eða tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu, óttaðist hún ekki niðurstöðuna.

„Spurningin er svo stór að ég trúi því ekki að Össur Skarphéðinsson ætli að standa fyrir því að láta samstarfið stranda á þessu,“ sagði Svandís þegar þátttarstjórnandi ítrekaði spurninguna um möguleika á áframhaldandi samstarf flokkann í ríkisstjórn eftir kosningar.

Össur sagði Samfylkinguna leggja mikla áherslu á að sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu sem fyrst og reynt að taka upp evru. Gríðarlega mikilvægt yrði að hefja viðræður strax í sumar. „Svar Svandísar nægir mér,“ sagði Össur og vísaði ti þess að Svandís sagði að ekki skipti máli hvort um eina eða tvær þjóðaratkvæðagreiðslur yrði að ræða.

„Svar Svandísar var prýðilegt. Steingrímur J. hefur sagt; við útilokum ekki neitt,“ sagði Össur. Hann sagðist telja að Samfylkingin og VG muni mynda nýja ríkisstjórn eftir kosningarnar og flokkarnir hefðu náð að jafna öll ágreiningsmál sín á milli.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is