Guðfinna ekki í kjöri

Guðfinna S. Bjarnadóttir.
Guðfinna S. Bjarnadóttir. mbl.is/ÞÖK

Guðfinna S. Bjarnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sækist ekki eftir endurkjöri í kosningum í vor. Hún var kjörin á þing í síðustu þingkosningum sem fram fóru vorið 2007.

Guðfinna segist ætla að taka þátt í því "endurreisnar og uppbyggingastarfi sem framundan er í íslensku samfélagi, en met það svo að kröftum mínum sé betur varið á öðrum vettvangi en í stjórnmálum enda þótt seta a Alþingi hafi vissulega verið verðmæt og lærdómsrík reynsla sem ég er þakklát fyrir."
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert