Skráðum umferðaróhöppum fækkar
mbl.is
Þetta kemur fram í ársskýrslu umferðardeildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt tölum lögreglunnar fækkaði umferðaróhöppum um 30% eða úr rúmlega 9 þúsund í 6277.
Fram kemur í skýrslunni að skýringin liggi að nokkru leyti í samkomulagi tryggingafélaga og Neyðarlínu um mitt síðasta ár um aðstoð á vettvangi til handa þeim er lenda í minni háttar umferðaróhöppum. Á sama tíma hætti lögreglan að mestu að sinna slíkum óhöppum. Samkvæmt tölum tryggingafélaganna fækkaði óhöppum minna eða um 16%.
Þá voru umferðarslys á síðasta ári 41% færri en árið 2007 eða 535. Tölur tryggingafélaga sýna 28% fækkun milli ára segir í skýrslu LRH og tölur Umferðarstofu mæla 16% fækkun.
Markmið lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári var að fækka slysum um 5% og til að ná því var megin áherslan meðal annars lögð á sýnilegt eftirlit þar sem slys hafa verið tíð, hraðakstursmælingar með ómerktri lögreglubifreið þar sem hraðakstur og/eða slys hafa verið tíð og meiri málshraða og markvissari vinnubrögð. Sömu áherslur verða lagðar fyrir starfið á þessu ári.
Fram kemur í skýrslunni að myndavélabifreið lögreglunnar vaktaði alls rúmlega 17 þúsund ökutæki í hinum ýmsu hverfum og sveitarfélögum umdæmisins og var 4845 þeirra ekið yfir leyfilegum hámarkshraða sem er um 28%. Á gatnamótum vöktuðu myndavélar alls 164.195 ökutæki og var 5241 ekið yfir leyfilegum hámarkshraða. Í Hvalfjarðargöngum voru 133.666 ökutæki vöktuð og ók 2141 yfir leyfilegum hraðamörkum þar.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 5. október 2009, Innlent Umferðarslysum fækkar á höfuðborgarsvæði
- Mánudagur, 7. september 2009, Innlent Umferðarslysum fækkar í borginni
- Þriðjudagur, 8. september 2009, Innlent Umferðarslysum fækkar mikið
- Föstudagur, 19. september 2008, Innlent Hætt að elta venjulega Íslendinga
- Miðvikudagur, 26. nóvember 2008, Innlent Dregur úr umferðarslysum í Reykjavík
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































