Ofbeldi og einelti á ekki að líðast
Vinkonur. Það getur reynst þrautin þyngri að uppræta einelti. Skólayfirvöld á Selfossi voru í Morgunblaðinu 24. febrúar, gagnrýnd fyrir að taka ekki nógu hart á slíkum málum.
Ofbeldi og einelti „á ekki að líðast innan skóla sem utan. Á hverjum tíma á það að vera samfélagslegt verkefni hvar sem menn búa að útrýma ofbeldi og einelti,“ segir í yfirlýsingu frá fræðsluyfirvöldum Árborgar. Yfirlýsingin er send í tilefni umfjöllunar Morgunblaðsins um eineltismál á Selfossi.
Yfirlýsing fræðsluyfirvalda Sveitarfélagsins Árborgar vegna umfjöllunar um eineltismál á Selfossi í Morgunblaðinu miðvikudaginn 24. febrúar.
„Ofbeldi og einelti er því miður til staðar í íslensku samfélagi og er Selfoss þar ekki undan skilið.
Ofbeldi og einelti á ekki að líðast innan skóla sem utan. Á hverjum tíma á það að vera samfélagslegt verkefni hvar sem menn búa að útrýma ofbeldi og einelti. Það að útrýma einelti og ofbelti er einnig stöðugt og sameiginlegt verkefni allra sem að skólamálum koma, yfirvalda, starfsmanna skóla og foreldra, að ógleymdum börnunum sjálfum. Sem betur fer hefur mikið áunnist í þessum efnum á undanförnum árum með góðri vinnu innan skólanna í Árborg sem og um allt land.
Á undanförnum árum hafa grunnskólar í Sveitarfélaginu Árborg unnið að því markmiði að útrýma einelti og nýtt til þess m.a. aðferð Olweusar gegn einelti. Einelti í grunnskólum birtist með misjöfnum hætti á milli skólaára.
Fræðsluyfirvöld í Árborg leggja mikla áherslu á að stöðugt sé unnið að því að koma í veg fyrir einelti innan grunnskólanna með viðurkenndum leiðum.
Á undanförnum árum hefur verið góð samvinna með sérfræðiþjónustu skóla og ráðgjafa Olweusar verkefnisins á Íslandi varðandi eftirfylgni þeirra tilfella sem upp hafa komið.
Fræðsluyfirvöld sveitarfélagsins tjá sig ekki að öðru leyti en hér að fram greinir varðandi skrif Morgunblaðsins miðvikudaginn 24. febrúar.“
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 28. febrúar 2009, Innlent Gerendur beittir viðurlögum
- Þriðjudagur, 27. október 2009, Innlent Átaki gegn einelti hrint úr vör
- Fimmtudagur, 21. febrúar 2008, Innlent Einelti skal ekki þrífast í okkar skóla!
- Miðvikudagur, 25. febrúar 2009, Innlent Eineltismál leyst með góðri samvinnu
- Þriðjudagur, 19. maí 2009, Innlent Brugðist verði við einelti
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































