Yfirmönnum Ísfélags Vestmannaeyja sagt upp

Frá Vestmannaeyjum
Frá Vestmannaeyjum mbl.is/Brynjar Gauti

Ægi Páli Friðbertssyni, framkvæmdastjóra Ísfélags Vestmannaeyja, og  Baldvini Johnsen, fjárreiðustjóra Ísfélagsins, hefur verið sagt upp störfum. Þetta kemur fram á fréttavefnum eyjar.net.

Stjórn Ísfélags Vestmannaeyja hf. ákvað á fundi sínum í gær að segja upp Ægi Páli Friðbertssyni framkvæmdastjóra félagsins og hefur hann þegar látið af störfum. Ástæða uppsagnarinnar er, að óbreyttu, tap félagsins af afleiðusamningum við íslenska banka. Telur stjórn félagsins að framkvæmdastjórinn hafi farið út fyrir heimildir sínar í störfum sínum. Stjórnin harmar að til uppsagnarinnar þurfi að koma en telur ekki undan því vikist í ljósi alvarleika málsins,að því er segir í tilkynningu, sem birtist á vefnum eyjar.net.

Eyjar.net hefur fengið það staðfest að Baldvini Johnsen, fjárreiðustjóra Ísfélags Vestmannaeyja var einnig sagt upp í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert