Stórhættulegar gassprengingar

Litlu mátti muna að fólk slasaðist í eldinum við Síðumúla vegna gassprenginga á þaki hússins þar sem eldurinn kom upp.  Mjög greiðlega gekk að rýma húsið. Margvísleg starfsemi er í húsinu, meðal annars íslensk tónverkamiðstöð, hárgreiðslustofa og skrifstofur og verslunin Mótorsport.  

Þorvaldur Geirsson varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir að eldurinn hafi kviknað þegar menn hafi verið að breiða dúk á þakið.  Margir gaskútar voru á þakinu og því mönnum í nágrenninu mikil hætta búin. Þegar slökkviliðið kom á staðinn höfðu mennirnir náð að forða sér niður en sendur var körfubíll upp til öryggis.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn og steypt plata er milli hæða svo tjónið á neðri hæðum er lítið. Fjöldi fólks var í húsinu en Neyðarlínan hringdi í alla og þegar slökkvilið kom á staðinn streymdi fólk út úr húsinu. Efsta hæðin er ónýt en talið er að neðri hæðir hafi að mestu sloppið. Óvíst er þó með vatnstjón.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert