Skilanefnd Glitnis tekur yfir hlutafé Moderna Finance AB

Skilanefnd Glitnis náði samkomulagi við Milestone ehf. í dag og hefur gengið að veðum í öllu hlutafé í Moderna Finance AB, dótturfélagi Milestone ehf. í Svíþjóð. Með þessu færast yfirráð yfir íslenskum dótturfélögum Moderna Finance, Sjóvá, Askar Capital og Avant, til skilanefndar Glitnis.

„Áfram er unnið að endurskipulagningu félaganna og er samningurinn við skilanefndina liður í að tryggja rekstur þeirra til frambúðar.

Samningurinn mun ekki hafa áhrif á daglegan rekstur íslensku félaganna.
Samningurinn hefur ekki áhrif á söluferlið sem var hafið á erlendum eignum Moderna Finance AB.

Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis segir að yfirtaka á hlutafé Moderna Finance AB sé eðlilegt framhald á vinnu skilanefndarinnar, eftir að áætlanir um fjárhagslega endurskipulagningu Moderna Finance samstæðunnar náðu ekki fram að ganga,“ segir í tilkynningu frá skilanefndinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert