Kaup á vændi verði refsivert
Til stendur að breyta almennum hegningarlögum þannig að kaup á vændi verði gert refsivert. mbl.is/Árni Torfason
Í nýrri aðgerðaáætlun gegn mansali, sem ríkisstjórn Íslands samþykkti í dag, eru lagðar til aðgerðir sem miða að því að sækja gerendur til saka, auka aðstoð við þolendur og tryggja vernd þeirra. Þá stendur til að breyta almennum hegningarlögum þannig að kaup á vændi verði gert refsivert.
Einnig á að girða fyrir undanþágumöguleika í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald fyrir nektarstaði þannig að lögin banni alfarið starfsemi nektarstaða. Þá verða siðareglur settar fyrir Stjórnarráðið og opinberar stofnanir sem fela í sér skýlaust bann við kaupum á kynlífsþjónustu.
Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, kynnti aðgerðaáætlunina á blaðamannafundi í dag.
Ásta segist fagna aðgerðaáætluninni „að með henni sé langþráðum áfanga náð í baráttunni gegn mansali á Íslandi. Mansal sé eitt andstyggilegasta form skipulagðar alþjóðlegrar glæpastarfsemi og miklu skiptir að koma lögum yfir þá sem það stunda og veita fórnarlömbum þess vernd og aðstoð. Skilaboð stjórnvalda eru skýr, hér verður mansal ekki liðið,“ segir í fréttatilkynningu.
Þar segir jafnframt að aðgerðaáætlun stjórnvalda sé ætlað að efla baráttuna gegn mansali á Íslandi með ýmsu móti. Í henni sé miðað að því að fullgilda alþjóðlega samninga um alþjóðlega glæpastarfsemi og mansal sem íslensk stjórnvöld hafi undirritað. Tryggja eigi að fórnarlömbum mansals, þar á meðal börnum, sé veitt aukin aðstoð, öruggt skjól og vernd með því meðal annars að setja á fót sérfræðiteymi sem hafi yfirumsjón yfir málaflokknum. Lagt verði fram frumvarp sem tryggi fórnarlömbum mansals tímabundið dvalarleyfi á meðan þau geri upp hug sinn um framtíðardvalarstað. Á þeim tíma verði fórnarlömbunum tryggt öruggt skjól og fjárhagsleg og félagsleg aðstoð.
Að sögn Ástu Ragnheiðar er gert ráð fyrir að frumvarpið verði samþykkt fyrir þinglok.
|
|
Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar gegn mansali |
Bloggað um fréttina
-
-
Haraldur Haraldsson Kaup á vændi verði refsiverð !!!!! -
Gústaf Níelsson Aðgerðaáætlun ríkisstjórnar -
Ólafur H. Guðgeirsson Þetta er alveg jafn mikilvægt og frumvarp um sölu áfengis ... -
Eymundur Sveinn Leifsson Hver að verða síðastur. -
Baldur Már Róbertsson Öfgar -
Hvíti Riddarinn Á að stoppa alla atvinnustarfsemi á landinu?? -
Laurent Somers Að rugla saman mansali og vændi -
Kristján Sigurður Kristjánsson Kynferðislegur misþroski. -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir Loksins tekið á mansali ! -
Björn Finnbogason Elsta atvinnugrein í heimi? -
Sigurbjörn Friðriksson Hættulegt að banna kaup en leyfa sölu á vændi. -
Ignito Er þetta það sem lá mest á ? -
Pálmi Freyr Óskarsson Tökum fegurðarsamkeppni.................. -
Guðrún Sæmundsdóttir Sala vændis á líka að vera refsiverð! -
Guðrún Emilía Guðnadóttir Viðbót við færsluna mikið var. -
Eva Hauksdóttir Snilldaraðgerð -
Heimir L Fjeldsted Bullandi vændi um alla borg -
Margrét Rún Guðmundsdóttir Kraus Frábært!
Innlent »
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 3. september 2009, Innlent Metnaðarfull áætlun á ís?
- Laugardagur, 14. júní 2008, Innlent Ekkert finnst sé ekki leitað
- Föstudagur, 4. september 2009, Innlent Ætla ekki að leggja mansalsmálaflokkinn á ís
- Föstudagur, 6. nóvember 2009, Innlent Neyðarteymi að störfum
- Föstudagur, 19. mars 2010, Innlent Mansal að festast í sessi hér
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































