Þúsund verkamenn hafa fengið launahækkanir

Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA stækka

Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA SteinarH

„Rétt er að benda framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins á það að hlutverk verkalýðshreyfingarinnar er að bæta kjör sinna félagsmanna og það er Verkalýðsfélag Akraness að gera með því að skora á fyrirtæki sem hafa fjárhagslega burði til að koma með áður umsamdar launahækkanir strax,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA. Hann segir að um 1.000 verkamönnum og konum hafi verið tilkynnt að staðið verði við hækkun launa þeirra.

Vilhjálmur Birgisson sendir framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins tóninn í pistli á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness. Tilefnið er gagnrýni SA á þann þrýsting sem myndaðist í kjölfar ákvörðunar um arðgreiðslur HB Granda. Fjölmörg fyrirtæki hafa ákveðið að greiða áður umsamdar launahækkanir, þrátt fyrir samkomulag SA og ASÍ um frestun kjarasamninga til loka júní.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA sagði á mbl.is að verið væri að hrekja SA út í það að segja samningum upp með þessu framferði.

„Ugglaust hefðu Samtök atvinnulífsins viljað að Verkalýðsfélag Akraness hefði ekki greint frá því að fyrirtæki eins og HB Grandi væri að skila góðri afkomu og ætlaði að greiða sér út arð á sama tíma og verkafólk varð af þeirri hækkun sem átti að koma til framkvæmda 1. mars sl.  Slíkt kom alls ekki til greina af hálfu formanns félagsins vegna þess að félagið á að gæta að hagsmunum sinna félagsmanna og ef fyrirtæki geta greitt út arð þá er þeim engin vorkunn að greiða sínu starfsfólki áður umsamdar launahækkanir. Það er morgunljóst að sú umfjöllun sem Verkalýðsfélag Akraness fór af stað með þann 12. mars sl. vegna arðgreiðslna HB Granda hefur nú skilað umtalsverðum árangri fyrir verkafólk víða um landið,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA.

HB Grandi, Brim, hrognavinnsla Vignis G. Jónssonar, Norðurströnd á Dalvík, Sjávariðjan á Snæfellsnesi, Godthaab í Vestmannaeyjum og Sæmá á Blönduósi hafa öll tilkynnt að þau ætli að greiða umsamdar launahækkanir. Þá ætla fleiri fyrirtæki að standa við umræddar launahækkanir án þess að gera það opinbert, að sögn Vilhjálms.

„Ef það er rétt mat hjá formanni félagsins að um 1.000 verkamenn hafi fengið þessa launahækkun nú þegar þá þýðir það 13,5 milljónir í heildina til handa þessu verkafólki á mánuði fyrir utan áhrif á hækkun á yfirvinnu samhliða hækkun á grunnlaunum. Nú er búið að fresta launahækkunum alla vega til 1. júlí sem þýðir að heildarlaunahækkunin er um 40,5 milljónir handa öllum þessum starfsmönnum. Hver starfsmaður fær rúmar 40.000 kr. hækkun þessa 3 mánuði,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA.

Hann spyr nafna sinn Egilsson hjá SA af hverju eru Samtök atvinnulífsins hvetji fyrirtæki til að standa ekki við áður umsamdar launahækkanir og hvers vegna fyrirtæki sem hafi til þess fjárhagslega burði, megi ekki standa við þann samning sem undirritaður var 17. febrúar 2008.

„Það er verið að tala um verkafólk sem er með 140 til 160 þúsund í grunnlaun á mánuði. Þessi afstaða SA er mér óskiljanleg,“ segir Vilhjálmur Birgisson.

Sjá nánar á vef VLFA

VIlhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA

VIlhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Honda 100 F
Til sölu HONDA 100 F torfæruhjól 2004 mjög lítið notað fjórgeingisvél. Fyrir ald...
Silky Terrier strákar til sölu
Þrem bræðrum er óráðstafað úr þessu goti. Þeir eru heilsufarssk., örmerktir og ...
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Birkiplöntur með hnaus verð frá 2000 kr stk. Opið virka daga kl.13-18 , laugard....
BEAGLE HVOLPAR UNDAN VEL ÆTTUÐUM FORELDRUM
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
 
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...