Nýir eigendur taka við Árvakri

mbl.is/Jim Smart

Nýir eigendur taka við Árvakri hf. í dag. Fram kemur í tilkynningu að Óskar Magnússon taki formlega við af Einari Sigurðssyni, fráfarandi forstjóra Árvakurs, í dag, en Óskar mun bera titilinn útgefandi.

Í stjórn félagsins eru:

Sigurbjörn Magnússon, lögmaður, formaður stjórnar
Helga Steinunn Guðmundsdóttir, einn aðaleigandi Samherja
Bjarni Þórður Bjarnason, framkvæmdastjóri Arctica Finance
Ásdís Halla Bragadóttir, stjórnmálafræðingur
Gunnar B. Dungal, fyrrverandi eigandi Pennans.
 
Í varastjórn eru:

Ásgeir Bolli Kristinsson, kaupmaður, og Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Ramma, Siglufirði.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert