Byggingu tónlistarhúss lokið 2011
Austurhöfn-TR hefur eignast félögin Portus og Situs, sem höfðu með höndum uppbyggingu Tónlistar – og ráðstefnuhússins (TR), ásamt byggingarrétti á allri lóðinni að Austurbakka 2 eftir að samningsskilmálar þar um hafa nú verið undirritaðir af Austurhöfn, NBI hf., skilanefnd Landsbanka Íslands hf., menntamálaráðherra, fjármálaráðherra, borgarstjóra og Nýsi hf.
Með samkomulaginu tekur Austurhöfn við öllum réttindum og skyldum sem fylgja samningum um byggingu og rekstur TR. Áframhaldandi fjármögnun framkvæmdanna hefur jafnframt verið tryggð og er hún hluti af samkomulaginu. Áætlaður kostnaður við að ljúka verkefninu er 14,5 milljarðar króna, að meðtöldum vöxtum á byggingartíma.
Fyrr í vikunni var gengið frá samkomulagi Austurhafnar-TR og ÍAV, Íslenskra aðalverktaka, um verkframkvæmdina allt til loka. Það byggir í aðalatriðum á fyrirliggjandi samningum en tekur á breyttum verktíma, ýmsum viðaukum, sparnaðarmöguleikum og öðrum ráðstöfunum sem nauðsynlegar eru til að tryggja farsæl verklok. Miðað er við að verkinu ljúki í febrúar 2011 og að húsið verði tekið í notkun í apríl það ár, samkvæmt tilkynningu.
Starfsmönnum fjölgað í 300
Um 150 starfsmenn starfa nú við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins, þeim verður nú fjölgað í 200 og í sumar er áætlað að starfsmannafjöldinn verði kominn yfir 300 manns. Gert er ráð fyrir að nú hefjist að nýju vinna við fyrsta áfanga bílakjallara og að lokið verði við hönnun lóðar á næstunni, svo unnt verði að vinna við næsta nágrenni TR sumarið 2010.
Landsbankinn lánar 8 milljarða
Landsbankinn hefur í dag skuldbundið sig til að veita Austurhöfn TR brúarfjármögnun í því skyni að tryggja áframhaldandi framkvæmdir við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins.
Jafnframt því hafa Landsbankinn, Íslandsbanki hf. og Nýi Kaupþing banki hf. í dag komið sér saman um lánveitingu til verkefnisins að fjárhæð 14,5 milljarða króna, en sú fjárhæð mun duga til að ljúka byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins miðað við fyrirliggjandi áætlanir Austurhafnar TR. Hlutdeild Landsbankans í lánsfjárhæðinni nemur nærri 8 milljörðum króna, en auk þessa mun bankinn veita margvíslega fyrirgreiðslu vegna verkframkvæmdanna, að því er segir í tilkynningu.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 20. febrúar 2009, Innlent SAF: Fagna framhaldi framkvæmda
- Föstudagur, 22. maí 2009, Innlent Pétur J. Eiríksson nýr formaður stjórnar Portusar
- Mánudagur, 20. október 2008, Innlent Vilja jafnræði kynjanna við skipan í bankaráð
- Föstudagur, 1. janúar 2010, Innlent Fylgst með ákvörðun forsetans
- Laugardagur, 30. maí 2009, Innlent Skemmtigarður opnaður í Grafarvogi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































