Ný flugvél Gæslunnar kemur í júlí

Ný flugvél Landhelgisgæslunnar
Ný flugvél Landhelgisgæslunnar

Ný flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF kemur til landsins þann 9. júlí og er það nokkuð á undan áætlun.  Vélin er af gerðinni Dash-8 Q300 og eru samskonar flugvélar notaðar hjá strandgæslum og eftirlits- og björgunaraðilum víða um heim. 

Kaupsamningur var undirritaður í maí 2007 og var samningsverð 32,2 milljónir dollara.  Allar áætlanir um tíma og verð hafa staðist fullkomlega.  Ef eitthvað er mun verkið verða undir kostnaðaráætlun, að því er segir í tilkynningu.
 
Vélin er smíðuð hjá Bombardier í Kanada en ísetning tæknibúnaðar fer fram hjá Field Aviation í Kanada. 
 
Þjálfun á flugvélina er að hefjast  nú um helgina.
 


Vélin er smíðuð hjá Bombardier í Kanada
Vélin er smíðuð hjá Bombardier í Kanada
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert