Áhugi á samstarfi Íslands og Bandaríkjanna
Barack Obama Bandaríkjaforseti lýsti miklum áhuga á nánara samstarfi Íslands og Bandaríkjanna á sviði jarðhitavinnslu á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var Strassborg-Kehl um helgina. Obama átti viðræður við Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, um málefnið.
Obama sagði ríkisstjórn sína mjög einbeitta í því að þróa endurnýjanlega orkugjafa til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og skapa ný græn störf.
Áður en leiðtogafundinum lauk útnefndi Obama forseti einn af helstu ráðgjöfum sínum sem sérstakan tengil skrifstofu sinnar í Hvíta húsinu við Ísland á þessu sviði.
Íslendingum þakkað frumkvæðið
Í ræðu á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Strassborg-Kehl um helgina lagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra áherslu á að við þróun nýrrar framtíðarsýnar bandalagsins yrði sérstaklega tekist á við vaxandi mikilvægi norðurslóða og heimskautasvæðanna.
Össur benti á að vegna hlýnunar loftslags myndi innan skamms opnast skipaleið milli Kyrrahafs og Atlantshafs. Í kjölfarið myndu stórauknir vöruflutningar milli heimsálfanna hefjast um Norður-Íshafið.
Sömuleiðis myndi bráðnun heimskautaíssins opna ný svæði þar sem líklegt væri að vinnsla náttúruauðlinda, svo sem olíu og gass hæfist í framtíðinni. Össur varaði við því að ýtt yrði undir hernaðarleg umsvif á norðurslóðum en kvað nauðsynlegt að bandalagsríkin byggju sig undir frekara hlutverk á norðurslóðum í tengslum við aukna umferð og nýtingu svæðanna á næstu áratugum.
Í lokaályktun fundarins er Íslendingum sérstaklega þakkað frumkvæði í umræðum um öryggi á norðurslóðum.
Stuðningur við Rassmussen
Á lokuðum fundi leiðtoga bandalagsins tókst samkomulag um kjör Anders Fogh Rassmussen forsætisráðherra Dana sem næsta framkvæmdastjóra samtakanna. Í umræðum lýsti Össur Skarphéðinsson fyrir hönd íslensku ríkisstjórnarinnar eindregnum stuðningi við framboð hans.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Áhugi á samstarfi//mikið gott mál sem við eigum að taka ... -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Vilja gleypa Ísland? -
S i g u r ð u r Sigurðarson Össur og frjálshyggjumaðurinn Obama -
Friðrik Hansen Guðmundsson Hvað vill eftirsóttasti og uppteknasti maður í heimi til Íslands? -
Hallur Magnússon #9541 Auðlindastefna Framsóknar fellur að áherslum John Perkins! -
Finnur Bárðarson Ísland á einn vin
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent Össur sækir leiðtogafund NATO
- Laugardagur, 4. apríl 2009, Innlent Obama vill til Íslands
- Mánudagur, 6. apríl 2009, Innlent Málefni norðurslóða í lokaályktun NATO
- Fimmtudagur, 24. september 2009, Innlent Össur á leiðtogafundi um loftlagsmál
- Mánudagur, 9. febrúar 2009, Innlent Össur: Tekur vel í skýrslu Stoltenbergs
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































