Þingmenn syngja og dansa darraðardans

Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Mörð Árnason varaþingmann Samfylkingarinnar - hafa sungið Hani krummi hundur svín í ræðustól Alþingis fyrir nokkrum árum.

Þingmenn syngja ekki eingöngu, þeir stíga líka darraðardans í þingsölum og pískra og tísta að mati Árna Johnsens. Þetta var meðal þess sem bar á góma í umræðum um fundarstjórn forseta á Alþingi í dag.

Sjálfstæðismenn vildu hafa  fjárfestingarsamnning vegna álversins í Helguvík fyrst á dagskrá en ekki stjórnskipunarfrumvarpið sem þeir vildu færa aftast. Sjá MBL sjónvarp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert