Tveir ökumenn undir áhrifum

Töluverður fjöldi fólks var á skemmtistöðum í Vestmannaeyjum. Að sögn …
Töluverður fjöldi fólks var á skemmtistöðum í Vestmannaeyjum. Að sögn lögreglu fór allt vel fram. mbl.is/GSH

Skemmtanahald á Suðurlandi gekk skammlaust fyrir sig, samkvæmt upplýsingum frá lögregluembættum á svæðinu. Tveir ökumenn voru að vísu teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna á Selfossi, seint í gærkvöldi. Talsverður fjöldi fólks var hins vegar á skemmtistöðum, bæði á Selfossi og í Vestmannaeyjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert