Ekið á gangandi vegfaranda

Ekið var á gangandi vegfaranda á Eskifirði upp úr klukkan tvö í nótt. Hann var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupsstað. Ökumaðurinn var alsgáður og mun vegfarandinn hafa gengið skyndilega í veg fyrir bílinn.

Brotist var inn í félagsaðstöðu aldraðra í Neskaupsstað í nótt. Litlu eða engu virtist hafa verið stolið, að sögn lögreglunnar á Eskifirði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert