Ódýrar aðgerðir á vegakerfi höfuðborgarsvæðisins

Stefnt er að því að greiða fyrir almenningssamgöngum, umferð gangandi …
Stefnt er að því að greiða fyrir almenningssamgöngum, umferð gangandi og hjólandi vegfaranda ásamt umferðaröryggismálum. mbl.is/Kristinn

Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa gert með sér samkomulag um ódýrar aðgerðir til að draga úr umferðartöfum og/eða auka öryggi í umferðarkerfi Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Þar segir einnig að um mörg verk sé að ræða svo sem að breyta umferðarljósastýringu úr 3 fösum í 4 á gatnamótum Kringlumýrarbrautar - Laugavegs - Suðurlandsbrautar og á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar. Rampar á Bústaðavegi og Kringlumýrarbraut verði lengdir og undirgöng byggð. Einnig verði nokkrar framkvæmdir til að bæta aðstöðu strætisvagna og auka forgang.

Fram kemur að reiknað sé með að öll verkin verði unnin á þessu ári. Einkum sé um að ræða úrbætur á fjölförnum gatnamótum ásamt sérstökum aðgerðum til að greiða fyrir almenningssamgöngum, umferð gangandi og hjólandi vegfaranda ásamt umferðaröryggismálum. Heildarkostnaður við fyrirhugaðar framkvæmdir sé áætlaður um 460 milljónir kr. Þar af sé hluti Vegagerðarinnar áætlaður 320 milljónir og hluti Reykjavíkurborgar 140 milljónir.

Gerður verður sérstakur samningur um endanleg kostnaðarskipti og umsjón verka, hvert fyrir sig eða nokkur saman, þegar verkhönnun liggur fyrir. Ákvarðanir varðandi verkhönnun, framkvæmdir og eftirlit verða teknar í samráði beggja aðila en Reykjavíkurborg mun leiða þá vinnu.



 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert