Frávik eru veitt frá Maastricht-skilyrðunum
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is
Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, sem birt var í gær, eru heildarskuldir íslenska ríkisins áætlaðar ríflega landsframleiðslan hér á landi, eða í kringum 1.500 milljarðar króna. Það svarar til þess að heildarskuldirnar séu tæplega 103% af landsframleiðslunni.
Í svonefndum Maastricht-sáttmála eru skilyrði fyrir aðild ríkja að myntsamstarfi Evrópusambandsins. Meðal skilyrða er að skuldir ríkis séu ekki umfram 60% af landsframleiðslu viðkomandi ríkis. Skuldir íslenska ríkisins eru því nú töluvert þar framyfir.
Í þjóðhagsspánni segir að áætlanir fjármálaráðuneytisins geri ráð fyrir því að árið 2013 verði brúttóskuldir ríkissjóðs orðnar um 95% af landsframleiðslunni. Þá er í spánni sýnt dæmi um það hvernig hægt yrði að ná því markmiði að skuldirnar yrðu 60% af landsframleiðslunni á 30 árum, eða árið 2042.
Í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að þrátt fyrir Maastricht-skilyrðin, hefur verið litið framhjá þeim hluta þeirra sem snýr að heildarskuldum ríkja sem hlutfall af landsframleiðslu þeirra. Það var til að mynda gert árið 1998. Reyndar hefði rúmum helmingi þeirra ríkja sem eiga aðild að evrusvæðinu verið neitað um aðild ef farið hefði verið eftir þessu tiltekna ákvæði. Í sáttmálanum er tekið fram að ef heildarskuldirnar eru yfir 60% af landsframleiðslunni við aðild að myntsvæðinu verði hlutfallið að fara lækkandi og nálgast 60% hlutfallið með „viðunandi hraða“.
Meðal ríkja sem hefði verið neitað um aðild að myntsamstarfinu ef farið hefði verið eftir skilyrðunum um að heildarskuldir væru innan við 60% af landsframleiðslunni eru Þýskaland, Austurríki og Grikkland. Skuldir Þýskalands voru einungis rétt liðlega 60% af landsframleiðslunni þegar sótt var um og það sama á við um Austurríki. Í báðum tilvikum hafði hlutfallið þó aukist milli ára. Heildarskuldir Grikklands voru hins vegar yfir 113% af landsframleiðslunni þegar umsóknin var samþykkt.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Axelsson Evran og ofsatrú -
Jón Valur Jensson Maastricht-skilyrði fyrir upptöku evru eru fimm og við fjarri þeim ... -
-
Guðmundur Jónsson Peningaútgáfa er leið út úr fátækt.
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 14. júní 2010, Innlent Verðum ekki með evru árið 2014
- Þriðjudagur, 12. maí 2009, Innlent Skuldir ríkisins langt yfir viðmiðunum ESB
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Föstudagur, 4. desember 2009, Innlent Skuldastaðan frekar að skána
- Laugardagur, 28. mars 2009, Innlent Tilrauninni með sjálfstæða mynt lokið
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































