Útkall vegna sinubruna

Slökkviliðið sendi bíl til að slökkva sinueldinn.
Slökkviliðið sendi bíl til að slökkva sinueldinn.

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var fyrir stundu kallað að hringtorgi við Hádegismóa vegna sinubruna. Um var að ræða fyrsta útkallið í vor vegna sinubruna á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu.

Eldurinn var ekki mikill og gekk greiðlega að slökkva hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert