Fjölmenningardagur í Reykjavík

Léttklæddar dansmeyjar í blíðunni í bænum
Léttklæddar dansmeyjar í blíðunni í bænum mbl.is/Golli

Efnt var til skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju niður í miðbæ í dag í tilefni fjölmenningardagsins sem er í dag. Alþjóðahús og Reykjavíkurborg standa fyrir fjölmenningarhátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó þar sem verður dansað og sungið.

Gestir á fjölmenningarhátíðinni nutu mikillar veðurblíðu í göngunni og það gera einnig þeir sem nú eru í bænum og taka þátt í Listahátíð í Reykjavík.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert