Umferðarráð varar við niðurskurði fjármagns til umferðarmála

Vegna breyttra aðstæðna í efnahagsmálum hér á landi má búast við að fólk ferðist meira innanlands en utan á komandi sumri. Fyrir bragðið má búast við aukinni bílaumferð sem hefur mögulega hættu í för með sér, að því er segir í ályktun frá Umferðarráði.

„Á tveimur undanförnum árum hefur átt sér stað jákvæð þróun varðandi fækkun banaslysa í umferðinni, en aldrei hafa þau orðið færri tvö ár í röð á síðustu 40 árum. Fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa á þessu tímabili er hvergi lægri í Evrópu en á Íslandi. Vonandi tekst að halda áfram á sömu braut á þessu ári með aukinni vitund fólks um mikilvægi ýmissa öryggisþátta í akstri.

Engu að síður hefur alvarlega slösuðum fjölgað síðustu árin. Helstu ástæður eru of mikill umferðarhraði, ölvunarakstur og vanræksla á notkun bílbelta. Til þess að sporna við þeirri þróun varar Umferðarráð við niðurskurði fjármagns til Umferðarstofu en afleiðingin af því er m.a. skert umferðarfræðsla til barna og umferðaráróður í fjölmiðlum. Þá hvetur Umferðarráð stjórnvöld til þess að auka umferðarlöggæslu á vegum landsins í sumar vegna aukinnar umferðar. Einnig hvetur Umferðarráð alla þá sem leið eiga um vegi landsins að leggja sitt að mörkum svo takast megi að fækka alvarlegum umferðarslysum."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert