Viðræður að hefjast um uppgjör bankanna

mbl.is

Fulltrúar fjármálaráðuneytisins og nýju bankanna og ráðgjafar þeirra munu eiga fundi með skilanefndum bankanna og ráðgjöfum þeirra í þessari viku til að hefja formlegar samningaviðræður um greiðslur til gömlu bankanna fyrir yfirteknar eignir. Einnig stendur til að eiginfjármögnun nýju bankanna verði lokið í þessari viku.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá Fjármálaráðuneytinu að á síðustu þremur mánuðum hafi mikil vinna farið fram innan nýju bankanna við að ganga frá nýjum fjárhagsupplýsingum og viðskiptaáætlunum sem verði mikilvægur grundvöllur að samningaviðræðunum.

Þær viðskiptaáætlanirnar taka meðal annars mið af matsvinnu sem unnin var af Deloitte og skilað var í apríl. Þá hafa verið haldnir fjölmargir óformlegir fundir með skilanefndunum, ráðgjöfum þeirra og fulltrúum lánadrottna gömlu bankanna til að miðla upplýsingum og ræða möguleg samningsuppgjör.

Fram kemur í tilkynningunni að fjármálaráðuneytið leggi áherslu á að gætt verði sanngirni við samningsgerðina og að báðir samningsaðilar hafi aðgang að nauðsynlegum upplýsingum sem nú liggi fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert