Kaupþing í Lúx selt og fær nýtt nafn

Þessi belgíski sparifjáreigandi getur nú glaðst, því hann glatar ekki …
Þessi belgíski sparifjáreigandi getur nú glaðst, því hann glatar ekki sparifé sínu. Gengið hefur verið frá sölu Kaupþings í Lúxemborg. Sparifjáreigandinn mótmælti á föstudag fyrir framan höfuðstöðvar ING bankans í Brussel á föstudag og krafðist þess að fá peningana sína til baka. Reuters/THIERRY ROGE

Kaupthing Bank í Lúxemborg fær nýtt nafn í júlí og verður tíminn þangað til nýttur til að undirbúa formlega opnun nýja bankans. Helstu lánardrottnar Kaupthing Bank í Lúxemborg samþykktu í atkvæðagreiðslu á föstudag áætlun um endurskipulagningu bankans sem unnin var í samráði við Blackfish Capital Management Limited sem er fjármálafyrirtæki í eigu Rowland fjölskyldunnar í Bretlandi.  

Lánardrottnar sem eiga 98% af útistandandi kröfum samþykktu samkomulagið sem og 23 af þeim 25 bönkum um ræðir. Í báðum tilvikum þurfti samþykki meirihluta til að samkomulagið öðlaðist gildi, segir í tilkynningu frá bankanum.

Með samþykki lánardrottnanna er ljóst að allir viðskiptavinir Kaupthing Bank Luxembourg í Belgíu, Sviss, Lúxemborg, um 23 þúsund viðskiptavinir fá innstæður sínar að fullu greiddar. „Íslenska ríkið tekur ekki á sig neinar skuldbindingar eða leggur til neina fjármuni vegna endurskipulagningar bankans.“

Þá er fullyrt í tilkynningunni að eins og áður hafi verið greint frá sé tryggt við endurskipulagningu bankans að aðgangur íslenskra stjórnvalda að upplýsingum er varði einstaka viðskiptavini, verði hinn sami og áður.

„Rowland fjölskyldan hefur verið viðloðandi fjárfestingar og fjármálaumsýslu frá því um 1960 og rekur skrifstofur í London og á Guernsey. Tilgangur fjölskyldunnar með yfirtöku á bankanum er að bjóða hefðbundna bankastarfsemi á sviði eignastýringar og einkabanka-þjónustu meðal annars til íslenskra viðskiptavina,“ segir í tilkynningunni

Kaupthing Bank Luxembourg S.A. óskaði eftir greiðslustöðvun 9. október í fyrra eftir að ljóst var að móðurfélag hans hér á heima, Kaupþing, væri komið í greiðsluþrot.  Frá því í október hafa yfirvöld í Lúxemborg, þarlendir umsjónarmenn greiðslustöðvunarinnar ásamt framkvæmdastjórn bankans og skilanefnd Kaupþings hf. unnið að endurskipulagningu bankans til að tryggja eignir viðskiptavina. Þessu markmiði hefur nú verið náð með samþykki kröfuhafanna sem nú liggur fyrir.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert