Ríkið stígur fyrsta skrefið á langri ferð
eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mun í dag kynna fyrir ríkisstjórninni aðgerðir í ríkisfjármálum sem miða að því að ná fram markmiðum sem sett voru fram í efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) og íslenskra stjórnvalda eftir hrun bankakerfisins síðastliðið haust.
Fyrsta skrefið af mörgum í ríkisfjármálunum verður þar með stigið. Fyrir liggur að brúa þarf um 20 milljarða gat á þessu ári miðað við það sem áður var áætlað. Á fjárlögum fyrir árið í ár var gert ráð fyrir að fjárlagahallinn yrði rúmlega 150 milljarðar en nú bendir allt til þess að hann verði milli 170 og 180 milljarðar.
Þennan mun ætlar ríkisstjórnin fyrst og fremst að brúa með skattahækkunum en einnig með því að skera niður útgjöld. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður ráðuneytum gert að draga saman rekstrarútgjöld um eitt prósent a.m.k. á þessu ári sem kemur til móts við hækkun skatta. Sé mið tekið af heildarrekstrargjöldum ráðuneyta ættu að sparast 2 til 3 milljarðar króna með þessum niðurskurði. Þar mun mest mæða á heilbrigðis- og menntamálaráðuneytinu enda útgjöldin þar mest.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa margir þeirra sem tekið hafa þátt í viðræðum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um aðgerðir í efnahagsmálum talið að lengra þurfi að ganga í niðurskurði. Þetta á ekki aðeins við um fulltrúa aðila vinnumarkaðarins, heldur einnig þingmenn í stjórnarflokkunum báðum.
Áherslan hefur hins vegar verið lögð á að halda áætluninni sem lagt var upp með í samstarfi við IMF. Samkvæmt henni er ráð fyrir því gert að ríkissjóður verði hallalaus í lok árs 2012. Niðurskurðaráform muni fyrst og fremst koma fram í fjárlögum næsta árs og árunum tveimur þar á eftir.
Skattahækkunum og þar með auknum tekjum ríkisins er því ætlað standa undir um 80% af því sem þarf til að brúa fyrrnefnt 20 milljarða bil á þessu ári.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
Bloggað um fréttina
-
Emil Örn Kristjánsson Hversu langri? -
Dofri Hermannsson Lýðskrum og erfiðar ákvarðanir -
Vilhjálmur Árnason Fresta vandanum -
Jenný Anna Baldursdóttir Ég styð allan fjandann -
Sigurður Sveinsson Hamskipti. -
Margrét Sigurðardóttir Hvað ef . . . ? -
Andrés Kristjánsson Sjáið hvað Jóhanna og Steingrímur eru að gera!!!!! -
Jóhann Elíasson Mál til komið!!!!!! -
Andri Geir Arinbjarnarson Ríkisrekstur settur í fyrirrúm
Innlent »
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Mánudagur, 20. apríl 2009, Innlent Þurrausinn í nóvember
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Mánudagur, 11. maí 2009, Innlent Mikil þrautaganga framundan
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































