Vond áhrif af uppsögn samninga
Gylfi Arnbjörnsson segir það grundvallaratriði að staðið verði við gildandi kjarasamninga. Eggert Jóhannesson
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir ljóst að samskipti launþegahreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins (SA) verði með allt öðrum og verri hætti fari svo að SA segi upp kjarasamningum um næstu mánaðamót. Forsvarsmenn SA segja uppsögn samninga óhjákvæmilega ef Seðlabankinn lækkar ekki vexti.
Óformleg samtöl um framlengingu kjarasamninga hafa átt sér stað um helgina. Gylfi sagði að ASÍ tæki undir kröfu Samtaka atvinnulífsins um lækkun vaxta. Hann sagðist hins vegar ekki sjá fram á að einhver breyting væri að verða á afstöðu Seðlabankans sem hefur viljað fara mjög varlega í að lækka vexti. Gylfi sagði að þess vegna hefðu menn reynt að finna leiðir til að auðvelda Seðlabankanum að stíga skref í átt til frekari lækkun vaxta. Hann sagði tillögur ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum jákvætt innlegg í málið. Nauðsynlegt væri þó einnig að setja fram markmið í ríkisfjármálum fyrir árin 2011 og 2012. ASÍ hefur einnig sett fram hugmyndir um breytingar á lögum um gjaldeyrishöft og rekið á eftir tillögum um fjármögnun viðskiptabankanna.
Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins segja að ekki séu forsendur fyrir þeim launahækkunum sem núgildandi kjarasamningar gera ráð fyrir ef vextir í landinu verða ekki lækkaðir verulega. Óbreyttir vextir kalli á uppsögn kjarasamninga um næstu mánaðamót.
Gylfi sagði að ef kjarasamningum yrði sagt upp færðist umboð til gerð nýrra samninga til aðildarfélaga ASÍ. Hann sagðist ekki vilja spá fyrir um hvað gerðist í framhaldinu, en öllum mætti vera ljóst að reiðialda færi yfir vinnumarkaðinn ef reyna ætti að ná niður vöxtum í landinu með því að hafa launahækkanir af lægstlaunaða fólkinu. Hann sagði að þá yrði uppstytta í samskiptum ASÍ og SA. Samstarf aðila vinnumarkaðarins yrði með allt öðrum hætti en það væri í dag. Hann sagði að niðurstaða í viðræðum réðust á næstu 2-3 dögum.
Bloggað um fréttina
-
Andri Geir Arinbjarnarson Ríkisstjórnin er vandamálið, ekki Seðlabankinn -
Jón Aðalsteinn Jónsson Laun of há? -
Guðrún María Óskarsdóttir. ASÍ og SA munu þurfa að hugsa um allt annað ... -
Jakob Falur Kristinsson Kjarasamningar
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 17. febrúar 2009, Innlent Víðtækt samstarf á vinnumarkaði
- Þriðjudagur, 11. nóvember 2008, Innlent ASÍ og SA vinna að þjóðarsátt
- Föstudagur, 29. maí 2009, Innlent Viðræðurnar hanga á bláþræði
- Miðvikudagur, 8. október 2008, Innlent Stefnubreyting um vexti ánægjuleg
- Fimmtudagur, 22. október 2009, Innlent „Tónninn orðinn harðari“
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































