Sjö mánuði fyrir vörslu á amfetamíni

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur. mbl.is/Þorkell

 Tveir menn, 27 ára og 22 ára voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fíkniefnabrot. Mennirnir sem margsinnis hafa komist í kast við lögin voru dæmdir í sjö mánaða fangelsi óskilorðsbundið, fyrir vörslu á 26,8 grömmum af metamfetamíni og 7 grömmum af amfetamíni ásamt lítilræði af hassi.

Hinir ákærðu þurfa jafnframt að greiða óskipt 140.801 krónu í sakarkostnað auk málsvarnarlaun verjanda síns 237.048  krónur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert