Hitastig ekki í 23 gráður

Birkir Fanndal Haraldsson

Hiti komst ekki í 22,9 gráður í Bjarnarey í Vopnafirði í gær eins og sagt var frá á mbl.is í morgun. Bilun kom upp í sjálfvirkum mælum og því birtust upplýsingarnar, sem óyfirfarnar niðurstöður, um stund á vef Veðurstofunnar. Hitinn komst þó í 20.5 gráður á Hjarðarlandi í Biskupstungum og skreið því í fyrsta sinn á þessu ári yfir 20 gráðurnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert