Fréttaskýring: Lánshlutfallið gæti hugsanlega lækkað

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, segir líklegt að óvissa lánveitenda aukist verði frumvarpið að ... stækka

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, segir líklegt að óvissa lánveitenda aukist verði frumvarpið að lögum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Morgunblaðið Eftir Grétar Júníus Guðmundsson - gretar@mbl.is

Lánveitanda sem veitir lántaka lán gegn veði í fasteign er ekki heimilt að leita fullnustu fyrir kröfu sinni í öðrum verðmætum lántaka en veðinu. Krafa lánveitanda á hendur lántaka skal því falla niður ef andvirði veðsins sem fæst við nauðungarsölu nægir ekki til greiðslu hennar. Þetta er megininntakið í frumvarpi til laga, sem sex þingmenn úr þremur stjórnmálaflokkum hafa lagt fram á Alþingi.

Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, en meðflutningsmenn hennar eru úr sama flokki og hún, Borgarahreyfingunni og Framsóknarflokknum.

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, óttast að verði frumvarp þetta samþykkt gæti afleiðingin orðið lægra lánshlutfall við lánveitingar. Þess vegna segir hann að ekki sé víst að það yrði mikið til bóta. Hins vegar verði frumvarpið skoðað vandlega eins og aðrar hugmyndir sem fram komi og ætlað er að bæta stöðu heimilanna í landinu.

Ávinningur ekki borðleggjandi

Í nýgerðum stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar, aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélaganna er tekið fram að mikilvægt sé að bæta stöðu skuldsettra heimila. Segir Árni Páll að vinnu ráðherranefndar, sem hann á sæti í auk dómsmálaráðherra og viðskiptaráðherra, verði hraðað. Lögð verði áhersla á að tryggja að þau úrræði sem þegar hefur verið komið á gagnist eins og vænst var, auk þess sem tillögur verði lagðar fram um viðbótarúrræði eftir því sem þörf krefur.

„Þar á meðal verður framkomið frumvarp þingmannanna án efa tekið til skoðunar, en ávinningurinn af því er hins vegar ekki borðleggjandi,“ segir Árni Páll. „Verði frumvarpið að lögum, eins og það liggur fyrir, er líklegt að óvissa lánveitenda aukist. Ég óttast því að afleiðingin gæti orðið lægra lánshlutfall við lánveitingar. Ekki er víst að það væri mikið til bóta. En þetta þarf að skoða vel.“

Þá segist Árni Páll ekki sjá í fljótu bragði hvernig hægt væri að láta ákvæði frumvarpsins ná til þegar gerðra skuldbindinga, eins og gert er ráð fyrir í því.

Vill ganga lengra

Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna, segist telja að fari frumvarpið um samningsveð í gegn á Alþingi og verði að lögum, sé um mjög mikla réttarbót fyrir skuldara að ræða. Því sé ástæða til að fagna frumvarpinu. Hann vill þó ganga lengra og telur nauðsynlegt að þetta nái einnig til bílalána, ekki eingöngu fasteignalána.

Þess má geta að Íbúðalánasjóður hefur alla jafna ekki verið að eltast við fólk sem hefur misst húsnæði sitt á nauðungaruppboði, í þeim tilvikum þar sem sjóðurinn hefur ekki fengið lán sín greidd að fullu. Viðkomandi hafa hins vegar ekki fengið fyrirgreiðslu hjá sjóðnum á ný fyrr en kröfurnar hafa verið greiddar eða þær afskrifaðar.

Á að geta byrjað upp á nýtt

Samkvæmt frumvarpi þingmannanna sex um breytingu á lögum um samningsveð, sem eru númer 75 frá árinu 1997, er gert ráð fyrir að lánveitendur muni ekki geta haldið úti kröfum á fyrrverandi íbúðareiganda vegna þess sem ekki innheimtist við nauðungaruppboð. Því muni fyrrverandi íbúðareigandi, sem hefur misst íbúð sína á uppboði, geta byrjað upp á nýtt og reynt að koma sér á ný þaki yfir höfuðið. Það á hann eða hún að geta gert án þess að eiga á hættu að lánveitendurnir hafi stöðu til að fara fram á að ná því sem þeir fengu ekki á uppboðinu, eins og nú er hægt.

Frumvarpinu er ætlað að gilda um fasteignaveðlánasamninga sem þegar hafa verið gerðir og óháð því hvort lánastofnun lýtur eignarhaldi hins opinbera eða einkaaðila.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir og eiginmaður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.

Sé ekki í samkeppni við þingið

18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem er að vera sameiningarafl. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Akureyri - Glæsileg íbúðagisting
Rúmgóð og vel útbúin íbúðagisting. Uppábúin rúm, handklæði, nettenging og lokaþr...
Starcraft Fellihýsi með fortjaldi
Til sölu Starccraft Fellihýsi 9 ft árg 2000 ásamt nýlegu forjaldi ásett verð 69...
HARÐVIÐUR TIL HÚSBYGGINGA
Harðviður til húsabygginga  Sjá nánar á...
Til leigu
Til leigu í sumar 3 herbergja íbúð í Grafarvogi GSM 8940458...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...