Styrkir skiluðu árangri

Á slóð Vatnsdælasögu var eitt verkefnanna sem fékk styrk.
Á slóð Vatnsdælasögu var eitt verkefnanna sem fékk styrk. www.vatnsdalur.is

Styrkir til atvinnuskapandi stuðningsverkefna reyndust mjög mikilvægir fyrir framgang verkefnanna, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Byggðastofnunar. Að fenginni reynslu þykir ljóst að opinber stuðningur í formi styrkja og ráðgjafar er nauðsynlegur fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf.

Ríkisstjórnin samþykkti sérstaka fjárveitingu til atvinnuþróunarverkefna árið 2003 og úthlutaði Byggðastofnun 150 milljónum króna af þeirri fjárveitingu í verkefnastyrki. Alls voru veittir styrkir til 43ja verkefna og um síðustu áramót var lokið samningstíma flestra þeirra.

Alls bárust 90 umsóknir um styrk og voru 48 þeirra samþykktar. Af þessum 48 hugmyndum urðu 43 að veruleika. Stór hluti styrkjanna rann til rannsókna, menntunar og til verkefna sem snerust um samstarf og klasa. Skipting milli landshluta var nokkuð jöfn, að öðru leyti en því að fæst verkefnanna voru staðsett á Suðurlandi.

Gerð var viðhorfskönnun meðal verkefnisstjóra þeirra verkefna er styrkt voru og sýna niðurstöður að styrkurinn var mjög mikilvægur fyrir framgang verkefnanna og að opinber stuðningur í formi styrkja og ráðgjafar er nauðsynlegur fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf.

Sigríður K. Þorgrímsdóttir sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar vann greinargerð um stuðningsverkefni og má lesa greinargerðina á heimasíðu Byggðastofnunar.

 Greinargerð um styrki til atvinnuskapandi stuðningsverkefna

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert