Ekkert samkomulag við kröfuhafa

Ekki hefur enn tekist að ná samkomulagi við erlenda kröfuhafa Landsbanka, Glitnis og Kaupþings þrátt fyrir stíf fundahöld, en viðræðunum á að ljúka í síðasta lagi næsta föstudag.

Skilanefndir gömlu bankanna og viðræðunefnd ríkisins hafa fundað með erlendum kröfuhöfunum síðustu daga í London.

Heimildir Morgunblaðsins herma að langt sé á milli íslensku viðræðuaðilanna og kröfuhafanna sem stendur. Hins vegar á að reyna til þrautar að ná samningum á næstu dögum. thordur@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert