Forræði Íslandsbanka áfram hjá skilnefnd Gitnis

Skilnefnd Glitnis hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar fjölmiðla um aðkomu erlendra kröfuhafa að Íslandsbanka. Þar segir m.a. að kom i til þess að þessir aðilar eignist bankann að hluta eða öllu mini  eignarhald á Íslandsbanka áfram verða að fullu á forræði skilanefndar Glitnis. Það muni því ekki hafa bein áhrif á daglegan rekstur, stjórnun eða umsýslu eigna bankans.   

Yfirlýsingin fer í heild hér á eftir:

„Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um aðkomu erlendra kröfuhafa að Íslandsbanka vill skilanefnd Glitnis koma eftirfarandi á framfæri: 

Samkvæmt samningi stjórnvalda og Glitnis eiga kröfuhafar í gegnum Glitni möguleika á því að eignast Íslandsbanka að hluta eða öllu leyti. Komi til þess verður eignarhald á Íslandsbanka að fullu á forræði skilanefndar Glitnis.  Einstaka kröfuhafar munu ekki hafa bein áhrif á daglegan rekstur, stjórnun eða umsýslu eigna bankans, frekar en almennt gerist í almenningshlutafélögum.   

Kröfuhafar Glitnis eru dreifður hópur, þar á meðal bankar og verðbréfasjóðir, sem hefur það að markmiði að fá sem mestar endurheimtur af skuldabréfum sínum í Glitni banka.  Þessir aðilar telja verðmæti fólgin í eignarhaldi á Íslandsbanka og er gert ráð fyrir að þeir muni, þegar fram líða stundir, skipa óháða sérfræðinga í bankaviðskiptum í stjórn bankans. 

Þetta verður gert í nánu samráði við skilanefnd Glitnis, Fjármálaeftirlitið og stjórnvöld. . Fjármálaeftirlitið metur hæfi aðila til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtækjum sem og hæfi einstaklinga til að taka sæti í stjórnum banka og fjármálafyrirtækja.  

Árni Tómasson

formaður skilanefndar Glitnis

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert