„Ótrúverðug og villandi“
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is
Skýrsla ráðgjafarfyrirtækisins Sjónarrandar ehf. um arðsemi orkusölu til stóriðju er ótrúverðug, umfjöllun um efnahagsleg áhrif villandi og útreikningar óvandaðir og rangir í sumum tilvikum.
Þetta segir Ágúst F. Hafberg, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli, sem kynnt hefur sér innihald skýrslunnar. Hann hefur komið athugasemdum á framfæri við skýrsluhöfunda og þeir nú þegar leiðrétt ákveðna útreikninga. „Alvarlegast er að útreikningar á arðsemi íslenskra orkufyrirtækja eru mjög óvandaðir og leiða til þess að samanburður við erlend orkufyrirtæki er algerlega óraunhæfur,“ segir Ágúst og tekur dæmi um útreikninga Sjónarrandar á ávöxtun eigin fjár árið 2006 hjá Landsvirkjun, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja.
Bendir Ágúst á að í einni töflu í skýrslunni komi fram að ávöxtun eigin fjár hafi verið neikvæð um 12,4% árið 2006 hjá þessum fyrirtækjum. Það geti ekki staðist þar sem þetta ár hafi samanlagður hagnaður fyrirtækjanna verið yfir 13 milljarðar króna og ávöxtun þeirra á eigin fé um 7,7%. Ágúst segir skýrsluhöfunda hafa viðurkennt að þarna hafi þeir rangt fyrir sér. Við þetta hafi ávöxtun eigin fjár á tímabilinu 1988 til 2006 farið úr 1,4% í 4,4%. Því sé ekki um neina smávillu að ræða og hljóti hún að breyta öllum öðrum útreikningum.
„Þetta er einfaldlega illa gerð skýrsla og ótrúverðug, enda ekki við öðru að búast. Þetta eru menn sem eru búnir að tala í mörg ár gegn fjárfestingum í orkuiðnaði. Hefðu þeir komist að einhverri annarri niðurstöðu, þá væru þeir að viðurkenna að öll þeirra fyrri orð væru röng. Í því ljósi kemur niðurstaða skýrslunnar okkur ekki á óvart,“ segir Ágúst, en ein meginniðurstaða skýrslunnar er að arðsemi af fjármagni bundnu í orkuvinnslu sé ríflega helmingi minni að jafnaði en í annarri atvinnustarfsemi, að stóriðju og fjármálastarfsemi undanskildum.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Guðmundsson Hvar vinnur Ágúst F. Hafberg? -
Björn Heiðdal Orkufyrirtækin gjaldþrota, verðhækkanir framundan. -
Gunnar Th. Gunnarsson Skammarlegt - pöntuð niðurstaða -
Andri Geir Arinbjarnarson Pólitískir amatörar eina ferðina enn?
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 1. ágúst 2009, Innlent Alþekkt að orkuverð hér sé lágt
- Þriðjudagur, 28. júlí 2009, Innlent Lítil arðsemi af orkuvinnslu
- Laugardagur, 3. október 2009, Innlent Telur útilokað að leggja nýja skatta á álverin
- Fimmtudagur, 3. september 2009, Innlent Fráleit nálgun í áfangaskýrslu Sjónarrandar
- Mánudagur, 8. mars 2010, Innlent Norðurál tilbúið að byrja
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































