Mótmæla aðflugsæfingum herflugvéla

Flutningavél bandríska hersins á Akureyrarflugvell
Flutningavél bandríska hersins á Akureyrarflugvell mbl.is/Þorgeir Baldursson

Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi lýsa furðu sinni á því að utanríkisráðherra þjóðarinnar skuli heimila aðflugsæfingar orrustuflugvéla Atlantshafsbandalagsins og vörslu hergagna þess á Akureyrarflugvelli undir yfirskini loftrýmiseftirlits.

„Samtökin krefjast þess að herafli bandalagsins yfirgefi Akureyri án tafar og að utanríkisráðherra biðji þjóðina afsökunar á þeirri fylgisspekt hans við Bandaríkjaher sem hér birtist. Slíkur stuðningur við núverandi útþenslustefnu Bandaríkjanna og NATO – í norðurhöfum sem öðrum heimshlutum – þjónar ekki hagsmunum íslensku þjóðarinnar og er neyðarleg uppákoma fyrir sitjandi vinstri stjórn," að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert