Fjölmenni á félagsfundi Vinstri grænna

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson. Ómar Óskarsson

Fullt var út úr dyrum á félagsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í suðvesturkjördæmi með þingmönnum í kvöld. Meðal þeirra sem mættu á fundinn voru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, oddviti kjördæmisins og þingflokksformaður, og Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra. 

Mikill hiti var í fundargestum og ljóst að þeir skiptust algjörlega í tvo horn í afstöðu sinni til Icesave-samningsins. Sumir töldu farsælast að samþykkja hann sem fyrst svo hægt væri að snúa sér að uppbyggingu landsins meðan aðrir studdu stífa fyrirvara í anda þess sem Ögmundur Jónasson hefur talað fyrir.

Nýlegt samþykki Alþingis þess efnis að ganga til viðræðna við Evrópusambandið var einnig til umræðu og kölluðu sumir viðstaddra í því samhengi eftir auknu samráði við grasrótina. Einnig kom fram ósk félagsmanna um að Vinstri grænir beittu meiri róttækni til þess að ná fram réttlæti. Var í því samhengi sérstaklega nefnd frysting eigna auðmanna.

Margir fundarmanna áréttuðu óskoraðan stuðning sinn við ríkisstjórnarsamstarf VG og Samfylkingar.

Fjölmenni var á fundinum og fullt út úr dyrum.
Fjölmenni var á fundinum og fullt út úr dyrum. Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert