Tekinn í þrígang fyrir sömu brot

Lögreglan á Akureyri stöðvaði ungan mann um tvítugt í dag sem ók undir áhrifum vímuefna. Að sögn lögreglu var sami maður stöðvaður í gær og í síðustu viku fyrir sömu brot. Lögreglan segir að um einbeittan brotavilja sé að ræða hjá manninum.

Lögreglan segir að maðurinn, sem hefur áður komið við sögu lögreglu í tengslum við fíkniefnamál, hafi verið með lítilræði af fíkniefnum á sér. Hann hafi þó greinilega verið undir áhrifum vímuefna í öll skiptin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert