Landvernd vill friða Gjástykki
Stjórn Landverndar tekur undir áhyggjur Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, SUNN, vegna fyrirhugaðra rannsóknarborana í Gjástykki í Þingeyjarsýslu, sem nú eru í matsferli vegna umhverfisáhrifa. Stjórn Landverndar segir friðlýsingu Gjástykkis vera forsendu þess að þessu merkilega svæði verði ekki raskað. Stjórn Landverndar hvetur umhverfisráðherra að taka jákvætt í áskorun SUNN um að hafist verði handa sem fyrst við að undirbúa friðlýsingu.
Í yfirlýsingu Landverndar segir að samtökin hafi áður beitt sér gegn því að ráðist sé í orkuvinnslu í Gjástykki, enda hefði slíkt í för með sér mikið rask á svæði sem líkur benda til að búi yfir lítilli orku. Landvernd bendir í þessu sambandi á álit Náttúrufræðistofnunar Íslands á verndargildi jarðmyndana í Gjástykki.
Landvernd segir Gjástykki, ásamt svæðinu í kringum Leirhnjúk vestan Kröflu, sennilega það svæði í heiminum á þurru landi sem best sýni hvernig landreksflekarnir færast í sundur. Á þessum slóðum séu því aðstæður til fræðslu og náttúruupplifunar sem hvergi gefist annars staðar og í því felist mikil tækifæri.
Miklir möguleikar séu á þessum slóðum fyrir útivist og ferðaþjónustu, t.d. í gönguferðum milli Jökulsárgljúfra í Vatnajökulsþjóðgarði og Mývatns. Allt rask, þar með taldar rannsóknarboranir, ógni þessu gildi og rýri ímynd og gæði. Betri kostur væri að huga að annars konar nýtingu svæðisins, t.d. uppbyggingu eldfjallafræðagarðs í Gjástykki og við Leirhnjúk.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson Leirhnjúkur og Gjástykki eru ein heild. -
Kjartan Pétur Sigurðsson Gjástykki - Krafla - Leirhnjúkur. Myndband
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 7. ágúst 2009, Innlent Vilja friðlýsa Gjástykki
- Fimmtudagur, 10. september 2009, Innlent Gaumgæfir friðun Gjástykkis
- Þriðjudagur, 9. mars 2010, Innlent Friðlýsing Gjástykkis undirbúin
- Fimmtudagur, 11. mars 2010, Innlent Friðlýsing Gjástykkis vopn gegn álveri?
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































