Fréttaskýring: Skipulögð brotastarfsemi bönnuð

Félagsheimili Fáfnis í Hafnarfirði. stækka

Félagsheimili Fáfnis í Hafnarfirði. mbl.is

Morgunblaðið Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is

Breytingum á almennum hegningarlögum er ætlað að taka á skipulagðri glæpastarfsemi, líkt og þeirri sem talin er geta fylgt stofnun Hells Angels-félagsdeildar hér á landi. Frumvarp um slíkar breytingar var lagt fram á Alþingi í þriðja sinn undir lok júlímánaðar. Meðferð málsins var þá frestað en Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra hyggst leggja frumvarpið fram að nýju á haustþingi.

„Þar er lagt til að nýtt refsiákvæði komi inn í almenn hegningarlög,“ segir Ragna og kveður refsiréttarnefnd dómsmálaráðuneytisins hafa komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að lögfesta sérstakt refsiákvæði í almenn hegningarlög um bann við þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi.

Fjallaði nefndin um þetta álitaefni í sambandi við fullgildingu á Palermó-samningnum gegn fjölþjóðlegri, skipulagðri brotastarfsemi frá árinu 2000.

Félagsskapur þriggja eða fleiri

Í frumvarpinu er að finna nýtt ákvæði um bann við þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi. Skipulögð brotasamtök eru þar skilgreind sem félagsskapur „þriggja eða fleiri manna sem hefur það að meginmarkmiði, beint eða óbeint í ávinningsskyni, að fremja með skipulegum hætti refsiverðan verknað sem varðar minnst 4 ára fangelsi, eða þegar verulegur þáttur í starfseminni felst í því að fremja slíkan verknað.“

Í frumvarpinu segir ennfremur að: ,,sá er sammælist við annan mann um að fremja verknað sem varðar minnst 4 ára fangelsi og framkvæmd hans er liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka skal sæta fangelsi allt að 4 árum, nema brot hans varði þyngri refsingu samkvæmt öðrum ákvæðum laga þessara eða öðrum lögum.“

Fáfnir orðinn félagsdeild Vítisengla 2010?

Mótorhjólaklúbburinn Fáfnir mun, samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra, geta sótt um fulla aðild að Hells Angels-samtökunum á seinni hluta næsta árs. Í fréttum Stöðvar 2 nú um helgina kom fram að Fáfnir, sem raunar hefur lagt Fáfnisnafnið niður, hafi nú hlotið stöðu væntanlegs félags. Er það lokaskref að fullri aðild sem félagsdeild Hells Angels.

Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra, sem birt var í febrúarmánuði sl., greindi frá að Fáfnir hefði þá þegar hlotið viðurkenningu sem „stuðningsklúbbur“ Hells Angels hér á landi.

„Þar með hefur hópur manna á Íslandi stofnað til formlegra tengsla við alþjóðleg glæpasamtök. Fyrir liggur að félagar í Fafner MC-Iceland stefna að fullri aðild að Hells Angels-samtökunum,“ segir í skýrslunni.

Tilraunir vítisengla til að ná fótfestu á Íslandi má rekja a.m.k. sjö ár aftur í tímann og hafa á þeim tíma hópar erlendra liðsmanna vítisengla ítrekað verið stöðvaðir við komu sína til Íslands. Er lögregla þeirrar skoðunar að þessar aðgerðir hafi tafið fyrir að Fáfnir öðlaðist fulla aðild að samtökunum.

Yfirvöld hér á landi hafa átt í nánu samstarfi við hin Norðurlöndin, en þónokkuð er síðan ríkislögreglustjórar Norðurlandanna komu sér saman um þá stefnu að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi mótorhjólagengja.

Aukin skipulögð glæpastarfsemi hefur enda, að sögn embættis Ríkislögreglustjóra, alls staðar fylgt í kjölfarið þar sem Hells Angels hafa náð að skjóta rótum.

Líta á sem sitt svæði

Næstu nágrannar Fáfnis í iðnaðarhluta Vallarhverfisins hafa þó ekki enn orðið varir við þá þróun. Á sex mánaða tímabili, áður en Fáfnir flutti í hverfið voru 30 innbrot framin í Vallarhverfinu og á tímabilinu mars til ágústloka á þessu ári voru þau 36. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er þar ekki um teljandi mun að ræða í tíðni innbrota.

Heimildir Morgunblaðsins herma engu síður að menn hafi á orði að dregið hafi úr innbrotum í fyrirtæki í iðnaðarhverfinu í næsta nágrenni félagsheimilisins.

Þekkt sé erlendis frá að mótorhjólagengi líti á svæðið í næsta nágrenni við sitt félagsheimili sem sína eign og það kunni ekki góðri lukku að stýra fyrir brotamenn að láta greipar sópa innan þess svæðis.

1

Fyrsta skref til að verða félagi í Vítisenglunum er að vera skilgreindur sem áhangandi. Áhangendum er boðið að taka þátt í vissum viðburðum eða hitta vítisenglana á þekktum mótsstöðum.

2

Annað skref á þeirri löngu vegferð að öðlast félagsaðild að vítisenglunum er sem stuðningsfélagi og varir sú staða yfirleitt í eitt til tvö ár.

3

Þriðja skref er svo sem væntanlegur félagi. Þeir taka þátt í vissum félagsathöfnum, en hafa ekki atkvæðisrétt á meðan hæfni þeirra fyrir fulla félagsaðild er metin.

4

Til að verða fullgildur félagi þarf væntanlegur félagi að hljóta atkvæði annarra félaga og þarf yfirleitt meira en einfaldan meirihluta til. Liggi samþykki fyrir fer fram formleg innsetning þar sem væntanlegur félagi staðfestir tryggð sína í garð vítisenglanna.

heimild Wikipedia

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kawasaki KLE 500
Til sölu Kawasaki árgerð 2007, ekið 6035km. Allt í einum pakka,hjól, jakki, bux...
Akureyri - Glæsileg íbúðagisting
Rúmgóð og vel útbúin íbúðagisting. Uppábúin rúm, handklæði, nettenging og lokaþr...
Tjaldvagnaleiga
www.123.is/tjaldvagnaleiga...
Volvo Penta báta vél til sölu.48 hp
Vél í lagi , 48 hestafla nýtekinn úr bát vegna stækkunar á vél ca árg 86 Verð c...
 
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...