Helgi Hóseasson látinn

Mótmælandi Íslands Helgi Hóseasson er látinn.
Mótmælandi Íslands Helgi Hóseasson er látinn. Brynjar Gauti

Helgi Hóseasson lést á elliheimilinu Grund í morgun 89 ára að aldri. Helgi sem nefndur hefur verið mótmælandi Íslands fæddist í Höskuldsstaðaseli í Breiðdal þann 21. nóvember 1919. Hann var næstelstur fjögurra systkina. Frá þessu var greint í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Helgi var menntaður húsasmíðameistari, en þau réttindi hlaut hann árið 1941. Foreldrar hans voru þau Marsilía Ingibjörg Bessadóttir og Hóseas Björnsson.

Helgi var þekktur fyrir mótmæli sín allt frá árinu 1962 gegn meintu órétti sem honum finnst hann hafa verið beittur af íslenska ríkinu allt frá því að hann fæddist. Í seinni tíð hefur hann einnig mótmælt stuðningi Íslensks ríkisvalds við stríð og ójöfnuð.

Óréttlætið sem Helgi sagðist þurfa að líða fólst í því að hann gat  ekki fengið kirkju, dómstóla eða annað yfirvald til að rifta skírnarsáttmála sínum. Kirkjan og samfélagið vildu ekki viðurkenna að hann væri ekki lengur bundinn loforðum gefnum við skírn og fermingu. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og aðstoð lögfræðings fékk  Helgi aldrei kröfum sínum framgengt.

Helgi var einnig þekktur fyrir að hafa slett skyrhræringi á forseta Íslands, biskup og alþingismenn við þingsetningu árið 1972. Þegar Helgi var spurður í viðtali á Útvarpi Sögu í júní 2007 af hverju hann hefði skvett skyri en ekki einhverju öðru sagðist hann ekki hafa viljað skaða sjón mannanna með sýru eða öðru hættulegu. Seinna skvetti Helgi svo tjöru og ryðvarnarefni á alþingishúsið ásamt því að brjóta í því rúðu.

Árið 2003 kom út heimildarmyndin Mótmælandi Íslands, sem fjallar um Helga, eftir Þóru Fjelsted og Jón Karl Helgason. Myndin var tilnefnd til Eddunnar fyrir bestu heimildarmyndina sama ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert