Guðlaugur verður varamaður í borgarráði

Guðlaugur G. Sverrisson.
Guðlaugur G. Sverrisson.

Samgönguráðuneytið hefur fallist á og staðfest nýjar samþykktir um stjórn og fundarsköp Reykjavíkurborgar. Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, segir að þessi staðfesting ráðuneytisins eyði öllum vafa um hæfi Guðlaugs Sverrissonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur, sem varamanns Óskars í borgarráði.

Óskar segir í tilkynningu, að fulltrúar minnihlutans hafi gert ágreining um kjör Guðlaugs á sínum tíma og til þess að eyða óvissu um kjörgengi samþykkti meirihlutinn breytingar á samþykktum sínum. Ráðuneytið hafi nú staðfest breytingarnar, vafanum hafi verið eytt og kjörgengi Guðlaugs sem varamanns í borgarráði Reykjavíkur staðfest.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert