Grunaður um stuld á upplýsingum frá RSK
Forráðamaður IT ráðgjafar og hugbúnaðarþjónustunnar ehf., sem ætlaði að birta upplýsingar um tengsl fyrirtækja og einstaklinga úr fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, hafði undir höndum og nýtti sér upplýsingar úr hlutafélagaskrá án heimildar. Ríkisskattstjóri segir að ekki verði betur séð en að forráðamaðurinn hafi sem fyrrum starfsmaður ríkisskattstjóra tekið upplýsingarnar án heimildar og er sá þáttur nú til sérstakrar meðferðar.
Í fréttatilkynningu frá ríkisskattstjóra segir að í ljósi umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarið um lokun á aðgangi IT Ráðgjafar og hugbúnaðarþjónustunnar ehf. að fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra sé rétt að taka fram að samningar um miðlun upplýsinga úr hlutafélagaskrá byggi á þeirri forsendu að sá sem hyggst miðla upplýsingum hafi til þess starfsleyfi frá Persónuvernd.
Samningur við umræddan aðila hafi verið gerður í trausti þess að slíkt leyfi lægi fyrir áður en niðurhal og notkun upplýsinga hæfist. Þegar í ljós hafi komið að svo var ekki, hafi verið lokað fyrir aðgang hlutaðeigandi. Þá segir að ekki liggi fyrir afstaða Persónuverndar varðandi þá framsetningu og tengingu upplýsinga sem miðlarinn hugðist birta umfram þá almennu birtingu sem starfsleyfi miðlara hafa kveðið á um.
„Þá hefur komið í ljós að IT Ráðgjöf og hugbúnaðarþjónusta ehf. hafði undir höndum og nýtti sér upplýsingar úr hlutafélagaskrá sem ekki verður betur séð en að forráðamaður þess hafi sem fyrrum starfsmaður ríkisskattstjóra tekið án heimildar. Sá þáttur er nú til sérstakrar meðferðar,“ segir í tilkynningu ríkisskattstjóra.
Þá er áréttað að embætti ríkisskattstjóra er mjög áfram um að upplýsingagjöf til almennings sé með sem bestum hætti og gagnsæi sé haft að leiðarljósi. Slíkt þurfi þó ætíð að rúmast innan ramma laga og persónuverndar. Ríkisskattstjóri geti þannig ekki ljáð atbeina embættisins til að stunduð sé upplýsingamiðlun úr gagnagrunnum þess nema uppfyllt séu skilyrði laga, hversu göfug sem markmiðin eru. Ríkisskattstjóri segir að lagaskilyrðin hafi ekki verið uppfyllt hjá IT ráðgjöf og hugbúnaðarþjónustu ehf.
„Þá hefur forráðamaður IT Ráðgjafar og hugbúnaðarþjónustunnar ehf. lýst nauðsyn á auknu gagnsæi með kortlagningu eigenda félaga og rekstrar þeirra. Í ljósi þess vekur það athygli að það félag hefur á hinn bóginn ekki virt skýr fyrirmæli laga um afhendingu ársreikninga undanfarin þrjú ár,“ segir í tilkynningu ríkisskattstjóra.
Bloggað um fréttina
-
Ólína Þorvarðardóttir Hvað gengur ríkisskattstjóra til? -
Þórarinn Þ Gíslason ÁSAKAÐUR UM ÞJÓFNAÐ ER ALVÖRUMÁL,!..VEIT RÍKISSKATTSTJÓRI ÞAÐ, Í LJÓSI ÞVÍ ... -
Hólmdís Hjartardóttir Allt gert til að halda öllu undir borðum? -
Konráð Ragnarsson HVAÐA SKÚRKUR HRINGDI Í ÞIG SKÚLI??? -
Jóhann Elíasson Er ríkisskattstjóri varðhundur "SPILLINGARAFLANNA"?????? -
Helgi Jóhann Hauksson Hér má finna kjarnann í hruninu og spillingunni -
Salvör Kristjana Gissurardóttir Skrýtin tilkynning ríkisskattstjóra -
Jenný Anna Baldursdóttir Sikiley norðursins -
Jakob Falur Kristinsson Sakaður um þjófnað -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Ríkisskattstjóri í lið með útrásarvíkingum -
Sigurjón Sveinsson Og skattmann stelur engu? -
Bjarni Kjartansson Ofurmannlegur asnaskapur. -
Jón Aðalsteinn Jónsson Röggsamt stjórnvald -
Óskar Steinn Ómarsson Stinga honum inn -
Hrafn Arnarson Hvert er hlutverk ríkisskattstjóra ? -
-
Kolbrún Hilmars Er tímabært að létta á ríkisskattstjóraembættinu? -
Jón Sævar Jónsson Spilltur ríkisskattstjóri?
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. september 2009, Innlent Ríkisskattstjóri biðst afsökunar
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Vinnslan ekki leyfisskyld
- Laugardagur, 19. september 2009, Innlent Ríkisskattstjóri veitir aðgang
- Þriðjudagur, 7. apríl 2009, Innlent Lögmaðurinn talinn umboðslaus
- Fimmtudagur, 17. desember 2009, Innlent Yfirlýsing óheppileg en lögleg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































