Norskur fjárfestir kaupir hlut í MP Banka

Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP Banka. stækka

Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP Banka. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Norski fjárfestirinn Endre Røsjø og MP Banki hf. hafa náð samkomulagi um að Røsjø eignist hlut í bankanum að loknum fyrirhuguðum hluthafafundi í næsta mánuði og verði þar með virkur hluthafi við framtíðarþróun bankans.
 
Endre Røsjø á að baki langan og farsælan feril í banka- og fjárfestingastarfsemi, allt frá árinu 1970. Á meðal núverandi fjárfestinga hans er norska fjárfestingafélagið Centennial og verðbréfafyrirtækið Pinemont Securities í London sem er aðili að kauphöllinni þar.  Á meðal fyrri fjárfestinga Røsjø er Pinemont Bank í Texas í Bandaríkjunum sem hann seldi fyrir nokkrum árum.

Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri MP Banka, segist í tilkynningu mjög ánægður með fjárfestingu Røsjø.

„MP Banki er vel í stakk búinn til að styrkja stöðu sína  á markaðnum, en bankarekstur er krefjandi verkefni við núverandi aðstæður á Íslandi. Það er mjög jákvætt fyrir okkur að jafnreyndur fjármálamaður og Røsjø gangi til liðs við bankann. Honum líst mjög vel á rekstrarhorfur bankans og aðkoma hans eykur möguleika bankans til að nýta tækifærin og takast á við ný verkefni,“ segir Gunnar Karl Guðmundsson.

Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP Banka, segist einnig mjög ánægður með ákvörðun Røsjø.

„Stjórn MP Banka og stærstu hluthafar átta sig vel á því að ef MP Banki vill verða í leiðandi stöðu á markaðnum þá þarf bankinn að vera í dreifðara eignarhaldi. Fjárfesting Endre Røsjø er fyrsta skrefið í þá átt og við erum að vinna að því að fá fleiri stofnanafjárfesta að bankanum.“ segir Marger Pétursson.

Endre Røsjø telur fjárfestingu sína í íslenskum banka fela í sér mikil tækifæri og vonast til að koma að fleiri verkefnum á Íslandi á næstunni, m.a. í gegnum norrænan fjárfestingasjóð.

„MP Banki var eins og ég sjálfur mjög áhættufælinn á árunum 2007-8 og lagði áherslu á ríkisskuldabréf. Hrunið var mikil þolraun fyrir fjármálafyrirtæki eins og MP Banka og forysta hans og starfsfólk hafa sannað að þau eru þrautseig og traust. Mér líst vel á að þróa bankann áfram með þeim. Ég heimsótti Ísland í vor að frumkvæði fyrrum Seðlabankastjóra, Svein Harald Øygard, til að kanna hvort ég og aðrir norrænir fjárfestar gætum fjárfest hér og með því örvað efnahagslífið. Ég væri mjög ánægður ef þessi fyrsta fjárfesting mín gæti eflt traust á íslenska bankakerfinu.“

Vefsíða MP banka

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Hugmyndir að Svínavatnsleið.

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gisting á Höfuðborgarsvæðinu.
Erum með laus herbergi í gistiheimilinu. Tilboð í maí. Gistiheimilið Lily Nýb...
Nú er vor í lofti og allir ættu að nýta sér þetta tilboð
Bónstöð Ragga í Garði kynnir Alþrif með bóni, lakkhreinsun og djúphreinsun á s...
Fótboltaspil
Til sölu er þetta glæsilega fótboltaspil, er eins og nýtt. Verð kr. 10.000 að lá...
GSM öryggis- hússtjórnunar- og vöktunark
Til sölu GSM öryggis- hússtjórnunar- og vöktunarkerfi fyrir, sumarhús, heimili, ...
 
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...